Blogg

11.11.2009

Langþráð valhnetu - ostabrauð

Sunna Arnarsdóttir 11 November at 17:42
Sæl vertu Guðný Anna.
Hér kemur uppskriftin:

375 g hveiti (ég átti hvorki heilhveiti né spelt og gat því ekki annað gert en að nota hvítt hveiti..)
3 sléttfullar tsk. lyftiduft
100 g parmessan ostur, rifinn gróft (ég notaði 50 g parmessan og 50 g valhnetur sem ég braut niður)
1 egg
3 msk olía (notaði ólívuolíu)
100 ml Ab-mjólk og 150 ml mjólk (ég notaði 100 ml AB, 100 ml kotasælu og 50 ml mjólk)

Henti öllu í skál, þurrefnum fyrst og svo öllu blautu og hnoðaði deig. Bjó til bollur, penslaði með vatni og bakaði svo í 20-30 min (25 min) við 180°C.

Voila, bon appetit ;).

Bestu kveðjur í Bryggjuhverfið!
Sunna Frissuvinnsa

Skrifað 11.11.2009 kl. 23:31 af gaa

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Afmælisdagur:

7. ágúst

Faðir:

Arnþór Jensen

Móðir:

Guðný Anna Pétursdóttir Jensen

Önnur vefsíða:

www.gudnyanna.blog.is

Tenglar

Eldra efni

clockhere