Blogg

23.11.2009

Já, sæll, eigum við að ræða það nokkuð frekar?

Parma kjúklingur með Parm-pasta-sósu

4 úrbeinaðar kjúklingabringur eða samsvarandi magn af kjúklingalundum

100 g parmesanostur

1 sítróna, rífið niður börkinn og pressið safann úr

2 egg

hveiti

2 dl heimatilbúið brauðrasp (ristið brauð eða hitið í ofni og maukið í matvinnsluvél)

1 dl valhnetur, ristaðar og muldar

2 msk söxuð steinselja

1 msk saxað timjan

1 msk saxaðð rósmarín

salt og pipar

Skerið bringurnar í 2-3 bita eftir stærð, setjið í fat og hellið sítrónusafanum yfir. Blandið saman parmesan-ostinum, hnetumulningnum, rifna sítrónuberkinum, söxuðu kryddjurtunum og raspinu.

Pískið eggin. Veltið kjúklingabitunum upp úr egginu, hveitinu og síðan parmesan-raspinu.

Setjið kjúklingabitana í 180 gráðu heitan ofn og eldið í 30-40 mínútur.

Berið fram með  Tagliatelle-Parmigiano-sósu.

 Hana gerum við svona:

3 dl hvítvín

2 saxaðir skallottulaukar

4 dl kjúklingasoð

1 dós sýrður rjómi 18%

100 g rifinn Parmigiano

salt og pipar

Setjið saxaða laukin og vínið í pott og sjóðið á háum hita þar til um helmingur af víninu hefur gufað upp. Bætið nú kjúklingasoðinu saman við og sjóðið aftur niður um heming. Bætið rjómanum saman við, lækkið hitainn og þykkið sósuna aðeins, bætið loks rifna ostinum saman við, saltið og piprið eftir smekk.

Sjóðið Tagliatelle skv. leiðbeiningum og blandið saman við sósuna.

Skrifað 23.11.2009 kl. 21:08 af gaa

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Afmælisdagur:

7. ágúst

Faðir:

Arnþór Jensen

Móðir:

Guðný Anna Pétursdóttir Jensen

Önnur vefsíða:

www.gudnyanna.blog.is

Tenglar

Eldra efni

clockhere