Blogg
27.11.2009
Kurltoppar Jóhönnu Vigdísar
... sem reyndar er verðlaunauppskrift konu úr Skagafirði ...
- 3 eggjahvítur
- 200 g púðursykur
- 150 g síríus rjómasúkkulaði
- 2 litlir pokar Nóa lakkrís-kurl (160 g)
Stífþeytið eggjahvíturnar með púðursykrinum. Saxið súkkulaði smátt. Blandið súkkulaði og lakkrískurli varlega saman við eggjahvíturnar með gaffli. Látið með teskeið á smurða bökunarplötu og bakið í miðjum ofni við 150 gráður í 20 mín.

