Blogg

28.12.2009

Alvöru jólasulta


1 kg. þurrkaðar apríkósur, gróft saxaðar
1 l. eplasafi
Safi og rifinn börkur af einni sítrónu
1 kg. sykur
150 gr. pecan hnetur, gróft saxaðar
1 dl. koníak + 1 tesk. í hverja krukku

Látið apríkósurnar liggja í bleyti í eplasafanum í nokkra klukkutíma eða yfir nótt. Setjið í pott ásamt safanum og látið sjóða í 20 mínútur eða þar til apríkósurnar eru meyrar.
Blandið sítrónusafa og berki, hnetum og sykri saman við og sjóðið áfram við vægan hita í um 15 mínútur. Þeir sem eiga sykurmæli láta sultuna sjóða þar til mælirinn sýnir 105°. Takið sultuna af hitanum og látið kólna í 10 mínútur.
Hrærið koníakinu saman við og setjið strax í heitar krukkur. Hellið einni teskeið af koníaki í hverja krukku.
Gott er að láta sultuna standa í viku áður en hún er notuð.

Skrifað 28.12.2009 kl. 22:24 af gaa

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

27.11.2009

Kurltoppar Jóhönnu Vigdísar

... sem reyndar er verðlaunauppskrift konu úr Skagafirði ...

  • 3 eggjahvítur
  • 200 g púðursykur
  • 150 g síríus rjómasúkkulaði
  • 2 litlir pokar Nóa lakkrís-kurl (160 g)

Stífþeytið eggjahvíturnar með púðursykrinum. Saxið súkkulaði smátt. Blandið súkkulaði og lakkrískurli varlega saman við eggjahvíturnar með gaffli. Látið með teskeið á smurða bökunarplötu og bakið í miðjum ofni við 150 gráður í 20 mín.

Skrifað 27.11.2009 kl. 22:19 af gaa

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.11.2009

Ekki selt dýrar en keypt

Formúla heimsins  er fundin. Hún er svona:

?WORLD = ? OBJECT 1 ? OBJECT 2 ... ? OBJECT N    F

 

Skrifað 26.11.2009 kl. 22:21 af gaa

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

25.11.2009

Tiltekt og tilbehör

Ljón Ljón: Þú gleðst yfir vel unnu verki og notar tækifærið til þess að berja af þér smávægileg en hávær óþægindi í dag, líklega fyrir fullt og allt.

Þetta passar óhuggulega vel. Ég ligg alltaf undir því ámæli, ef eitthvað glatast eða finnst ekki í vinnunni minni, að hafa týnt því í öllum himinháu bunkunum sem prýða skrifstofuna mína. Mikilvægur pappír "hvarf" í dag og ég snéri öllum bunkum við og leitaði í tvo og hálfan tíma og var uþb búin að gera skrifstofuna mína steríla og nýtískulega, þegar pappírinn fannst á annari skrifstofu. Ég rak af mér slyðruorðið - OG hef sérdeilis snyrtilega skrifstofu....

Skrifað 25.11.2009 kl. 21:01 af gaa

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.11.2009

Já, sæll, eigum við að ræða það nokkuð frekar?

Parma kjúklingur með Parm-pasta-sósu

4 úrbeinaðar kjúklingabringur eða samsvarandi magn af kjúklingalundum

100 g parmesanostur

1 sítróna, rífið niður börkinn og pressið safann úr

2 egg

hveiti

2 dl heimatilbúið brauðrasp (ristið brauð eða hitið í ofni og maukið í matvinnsluvél)

1 dl valhnetur, ristaðar og muldar

2 msk söxuð steinselja

1 msk saxað timjan

1 msk saxaðð rósmarín

salt og pipar

Skerið bringurnar í 2-3 bita eftir stærð, setjið í fat og hellið sítrónusafanum yfir. Blandið saman parmesan-ostinum, hnetumulningnum, rifna sítrónuberkinum, söxuðu kryddjurtunum og raspinu.

Pískið eggin. Veltið kjúklingabitunum upp úr egginu, hveitinu og síðan parmesan-raspinu.

Setjið kjúklingabitana í 180 gráðu heitan ofn og eldið í 30-40 mínútur.

Berið fram með  Tagliatelle-Parmigiano-sósu.

 Hana gerum við svona:

3 dl hvítvín

2 saxaðir skallottulaukar

4 dl kjúklingasoð

1 dós sýrður rjómi 18%

100 g rifinn Parmigiano

salt og pipar

Setjið saxaða laukin og vínið í pott og sjóðið á háum hita þar til um helmingur af víninu hefur gufað upp. Bætið nú kjúklingasoðinu saman við og sjóðið aftur niður um heming. Bætið rjómanum saman við, lækkið hitainn og þykkið sósuna aðeins, bætið loks rifna ostinum saman við, saltið og piprið eftir smekk.

Sjóðið Tagliatelle skv. leiðbeiningum og blandið saman við sósuna.

Skrifað 23.11.2009 kl. 21:08 af gaa

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.11.2009

Reiðuvani

Óreiða elur oft af sér líf, á meðan regla skapar einungis vana. - Henry Adams

Skrifað 19.11.2009 kl. 21:49 af gaa

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

11.11.2009

Langþráð valhnetu - ostabrauð

Sunna Arnarsdóttir 11 November at 17:42
Sæl vertu Guðný Anna.
Hér kemur uppskriftin:

375 g hveiti (ég átti hvorki heilhveiti né spelt og gat því ekki annað gert en að nota hvítt hveiti..)
3 sléttfullar tsk. lyftiduft
100 g parmessan ostur, rifinn gróft (ég notaði 50 g parmessan og 50 g valhnetur sem ég braut niður)
1 egg
3 msk olía (notaði ólívuolíu)
100 ml Ab-mjólk og 150 ml mjólk (ég notaði 100 ml AB, 100 ml kotasælu og 50 ml mjólk)

Henti öllu í skál, þurrefnum fyrst og svo öllu blautu og hnoðaði deig. Bjó til bollur, penslaði með vatni og bakaði svo í 20-30 min (25 min) við 180°C.

Voila, bon appetit ;).

Bestu kveðjur í Bryggjuhverfið!
Sunna Frissuvinnsa

Skrifað 11.11.2009 kl. 23:31 af gaa

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Afmælisdagur:

7. ágúst

Faðir:

Arnþór Jensen

Móðir:

Guðný Anna Pétursdóttir Jensen

Önnur vefsíða:

www.gudnyanna.blog.is

Tenglar

Eldra efni

clockhere